
Í þínu liði
Distica er samfélagslega mikilvægt fyrirtæki og gegnir lykilhlutverki í heilbrigðiskerfi Íslendinga. Við flytjum inn, hýsum og dreifum lyfjum, lækningartækjum og heilbrigðisvörum. Við stöndum þétt við bakið á viðskiptavinum og styðjum vöxt þeirra.

Distica dreifir til 4 þúsund viðskiptavina, m.a. til apóteka, heilbrigðisstofnana, rannsóknastofa, tannlækna og dýralækna. Öflug dreifikerfi okkar tengja saman birgja, vöruhús og viðskiptavini í eina samfellda keðju. Skilvirk ferli og sterk rekstrargeta gera okkur að traustum samstarfsaðila um allt land. Við tryggjum að lífsnauðsynlegar vörur komist til þeirra sem þurfa.
Distica rekur öflugt gæðasvið sem sér um uppbyggingu, viðhald og þróun gæðastjórnunarkerfis Distica og tryggir að starfsemin uppfylli lagalegar kröfur, reglugerðir og staðla. Nákvæmni, rekjanleiki og stöðug umbótamenning eru hornsteinar gæðastarfs okkar.
Distica annast innkaup, innflutning, birgðastýringu, tollafgreiðslu og aðra þjónustu við umbjóðendur sína. Við sérhæfum okkur í innflutningi á viðkvæmum og lífsnauðsynlegum vörum. Markmið okkar er að tryggja að vörur viðskiptavina skili sér örugglega alla leið á íslenskan markað.
Vöruhús Distica eru sérhæfð fyrir lyf, lækningatæki og heilbrigðisvörur og þaðan dreifir Distica þúsundum sendinga til viðskiptavina um allt land. Við tryggjum réttar aðstæður fyrir allar vörur — frá móttöku, í umpökkun og til afhendingar.